• Seirejaam 1
  • Seirejaam 2
  • Seirejaam 3
  • Seirejaam 4
  • Seirejaam 5

Loftgæði á Íslandi

Aðalvalmynd

  • Mælingar 3 Þónokkur loftmengun. Viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna loftmengunar. 1 Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti. 7 Lítilsháttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif. 99+ Lítil sem engin loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.
  • Loftgæðaspá
    • EN
  • Akureyri, Flúðir
  • Akureyri, Hólmasól
  • Akureyri, Holtakot
  • Akureyri, Leikskólinn Naustatjörn
  • Akureyri, Strandgata
  • Akureyri, Strandgata við Hof. Rekstraraðilar Akureyrarbær og Umhverfis- og orkustofnun.
  • Akureyri, Tröllaborgir
  • Ásbrú - Háaleitisskóli. Rekstraraðil Umhverfis- og orkustofnun.
  • Bláa lónið (Móða7) . Rekstraraðili Veðurstofan. SO2 mælir. Rekstraraðili er Veðurstofan. Þetta er ekki nákvæmnismælir, mælióvissa getur verið allt að +/- 200 µg/m3.
  • Garðabær, Garðaholt. Rekstraraðili er Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
  • Garður. SO2 og H2S. Rekstraraðili Umhverfis- og orkustofnun.
  • Grindavík, Björgunarmiðstöðin (Móða 2). SO2 mælir.Rekstraraðili Veðurstofan. Þetta er ekki nákvæmnismælir, mælióvissa getur verið allt að +/- 200 µg/m3
  • Grindavík, Nesvegur. SO2 og H2S mælir. Rekstaraðili HS Orka. SO2 kemur frá eldgosum og nýrunnum hraunum en H2S kemur frá virkjuninni í Svartsengi.
  • Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt. Rekstraraðili er Rio Tinto á Íslandi.
  • Hafnarfjörður, Lónakot. Rekstraraðili er Rio Tinto
  • Hafnarfjörður, Norðurhella. Rekstraraðili er Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis.
  • Hellisheiðarvirkjun. Rekstraraðili er Orka Náttúrunnar.
  • Húsafjall (Móða 8). SO2 mælir. Rekstraraðili er Veðurstofan. Þetta er ekki nákvæmnismælir, mælióvissa getur verið allt að +/- 200 µg/m3.
  • Húsavík, Héðinsvík. Rekstraraðili er PCC.
  • Húsavík, Húsavíkurleiti. Rekstraraðili er PCC.
  • Húsavík, Reykjaheiði. Rekstaraðili er Landsvirkjun.
  • Hvalfjörður, Gröf. Rekstraraðilar eru Elkem og Norðurál.
  • Hvalfjörður, Kríuvarða. Rekstraraðilar eru Elkem og Norðurál.
  • Hveragerði, Finnmörk. Rekstaraðili er Orka náttúrunnar.
  • Keflavíkurflugvöllur, flughlað. SO2 og H2S. Rekstraraðili Isavia. Þetta er ekki nákvæmnismælir heldur grófur skynjari. Óvissa í mælingu á SO2 getur verið allt að +/- 200 µg/m3.
  • Keflavíkurflugvöllur, flughlað. Svifryk, rekstraraðili Isavia
  • Kelduhverfi, Eyvindarstaðir. Rekstaraðili Landsvirkjun.
  • Kirkjubæjarklaustur - SO2/H2S. Rekstraraðili Umhverfis- og orkustofnun.
  • Kirkjubæjarklaustur, svifryk. Rekstaraðili Umhverfis- og orkustofnun.
  • Kópavogur, Dalsmári. Rekstraraðili er Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
  • Kópavogur, Hörðuvallaskóli. Rekstraraðili er Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
  • Kópavogur, Waldorfskólinn Lækjarbotnum. Rekstraraðili er Orka Náttúrunnar.
  • Móða 10. Rekstraraðili Veðurstofan. Þetta er ekki nákvæmnismælir, mælióvissa getur verið allt að +/- 200 µg/m3.
  • Mývatnssveit, Reykjahlíð. Rekstaraðili er Landsvirkjun.
  • Mývatnssveit, Vogar. Rekstaraðili er Landsvirkjun.
  • Nesjavallavirkjun. Rekstraraðili er Orka Náttúrunnar.
  • Njarðvík - Stapaskóli. Rekstraraðili er Umhverfis- og orkustofnun.
  • Njarðvík, leikskólinn Akur. Svifryk.
  • Reyðarfjörður, Hjallaleyra, Stöð 1. Rekstraraðili er Alcoa.
  • Reyðarfjörður, Hólmar, Stöð 3. Rekstraraðili er Alcoa.
  • Reyðarfjörður, Ljósá, Stöð 2. Rekstraraðili er Alcoa.
  • Reykjanesbær, Hafnir. Rekstraraðili er Umhverfis- og orkustofnun.
  • Reykjaneshöllin. Rekstraraðili Umhverfis- og orkustofnun.
  • Reykjavík, Grensásvegur. Rekstraraðili er Umhverfis- og orkustofnun. Tilkynning 28 mars. Bilun er í svifryksmæli og því berast ekki upplýsingar um styrk svifryks.
  • Reykjavík, Húsdýragarðurinn. Rekstraraðili er Umhverfis- og orkustofnun.
  • Reykjavík, Lambhagi í Úlfarsárdal. Rekstraraðili er Orka Náttúrunnar. Tilkynning 6. mars: Bilun er í tæki, unnið er að lagfæringu. Á meðan berast ekki gögn.
  • Reykjavík, Laugarnes. Rekstraraðili er Faxaflóahafnir
  • Reykjavík, Mjódd.
  • Reykjavík, Norðlingaholt. Rekstraraðili er Orka Náttúrunnar..
  • Sandgerði, íþróttamiðstöð. Svifryksmælir. Fínt svifryk (PM2,5 og PM1) er góður mælikvarði á gosmóðu.
  • Sandgerði, SO2 mælir. Rekstraraðili Umhverfis- og orkustofnun.
  • Selfoss, SO2 og H2S. Rekstraraðili Umhverfisstofnun.
  • Selfoss, svifryk. Rekstraraðili Umhverfisstofnun
  • Vogar, SO2 og H2S. Mælir staðsettur á tjaldstæðinu.
  • Vogar, svifryk. Mælir staðsettur við sundlaugina.
  • Þorlákshöfn. Rekstraraðili Ölfus. Þetta er ekki nákvæmnismælir heldur grófur skynjari. Óvissa í mælingu á SO2 getur verið allt að +/- 200 µg/m3.
Til

Viðbrögð við loftmengun í eldgosum

Í töflunni hér að neðan eru settar fram upplýsingar um viðbrögð við mismunandi styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2). Til að framsetning sé sem einföldust eru settir fram litir sem lýsa áhrifum loftmengunar við mismunandi styrk. Hver litur gefur til kynna möguleg heilsufarsáhrif hjá bæði heilbrigðum einstaklingum en einnig viðkvæmum hópum, svo sem börnum og fólki með undirliggjandi lungna- eða hjartasjúkdóma. Litirnir í töflunni eiga við um litakóða inn á loftgæði.is en lýsingar og ráðleggingar í töflunni eiga eingöngu við um SO2, ekki önnur mengunarefni.

Ráðleggingarnar miða við að aðeins sé dvalið í 10-15 mínútur í loftmenguninni. Sé dvölin lengri má búast við meiri heilsufarsáhrifum. Tilgangur þessara leiðbeininga er m.a. að tryggja að dagleg starfsemi geti gengið sinn vanagang, eins og frekast er unnt, en lágmarka eins og mögulegt er áhrif SO2 á heilsu fólks.

Skammtímaáhrif SO2. Lýsingar á áhrifum miðast við 10-15 mín.

SO2 í 10─15 mín. Lýsingar á loftgæðum og áhrifum á fólk Ráðleggingar um viðbrögð
µg/m3 ppm Öll börn. Einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og viðkvæmir einstaklingar* Heilbrigðir einstaklingar


Mjög góð

0 - 20 0 - 0,1 Yfirleitt engin áhrif á heilsufar. Áhrif á heilsufar ólíkleg. Ung börn geta sofið úti vagni. Áhrif á heilsufar ólíkleg.


Góð

21 - 350 0 - 0,1 Yfirleitt engin áhrif á heilsufar. Geta fundið fyrir áhrifum. Ung börn eiga ekki að sofa úti í vagni. Áhrif á heilsufar ólíkleg.


Sæmileg

351 - 600 0,1 - 0,2 Viðkvæmir einstaklingar: Getur valdið óþægindum í öndunarfærum (hósta) hjá viðkvæmum einstaklingum. Heilbrigðir einstaklingar: Erting í augum, nefi og koki. Farið með gát, fylgist með mælingum. Dragið úr áreynslu utandyra ef þið finnið fyrir einkennum. Ung börn eiga ekki að sofa úti í vagni. Eldri börn eiga ekki að reyna á sig utan dyra. Slökkvið á loftræstingu. Áhrif á heilsufar ólíkleg. Slökkvið á loftræstingu.


Óholl fyrir viðkvæma

601 - 2.600 0,2 - 1,0 Viðkvæmir einstaklingar: Hósti. Erting í augum, koki og nefi. Heilbrigðir einstaklingar: Getur valdið einkennum frá öndunarfærum og ertingu í augum, nefi og koki. Forðist áreynslu utandyra og börn eiga ekki að vera úti við nema til að komast til og frá skóla. Slökkvið á loftræstingu. Áhrif á heilsufar ólíkleg en gagnlegt að draga úr áreynslu utandyra. . Reynið að anda eingöngu gegnum nef. Slökkvið á loftræstingu.


Óholl

2.601 - 9.000 1,0 - 3,0 Viðkvæmir einstaklingar: Hósti og höfuðverkur. Erting í augum, nefi og koki. Heilbrigðir einstaklingar: Sömu einkenni en vægari og ef til vill engin. Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Forðist áreynslu utandyra. Þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra. Reynið að anda eingöngu gegnum nef. Lokið gluggum og slökkvið á loftræstingu.
2.600 1,0 Vinnuverndarmörk í 15 mín. Öll vinna utandyra bönnuð nema með viðeigandi gasgrímu og gasmæli. Öll vinna utandyra bönnuð nema með viðeigandi gasgrímu og gasmæli.


Mjög óholl

9.000 - 14.000 3,0 - 5,0 Allir líklegir til að finna fyrir miðlungs- eða alvarlegum einkennum frá öndunarfærum. Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.


Hættuástand

> 14.000 > 5,0 Alvarleg einkenni frá öndunarfærum eru mjög líkleg bæði fyrir heilbrigða og viðkvæma. Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.
 *Öll börn. Fullorðnir með astma (sögu um ýl og/eða surg fyrir brjósti, eða greindan astma), berkjubólgu, lungnaþembu og hjarta- og æðasjúkdóma. Þessar leiðbeiningar gilda einnig um barnshafandi konur en þær eru ekki metnar í hættu umfram aðra.

Almennt um áhrif SO2 á heilsufar

Mest af SO2 sem berst í efri öndunarveg líkamans frásogast þar í gegnum slímhúðina. Þar umbreytist það í lifrinni og skolast út með þvagi. Mjög lítið safnast fyrir í líkamanum og skaða á innri líffærum hefur ekki verið lýst. Einnig framleiða bakteríur í nefi og koki ýmis efni sem binda SO2 og gera það óvirkt. Þegar mengun er yfir heilsuverndarmörkum er því mikilvægt að anda rólega í gegnum nefið og forðast áreynslu. Börn eiga ekki að sofa úti í vagni þegar SO2 mengun er viðvarandi eða á meðan mengunartoppur varir og allir eiga að forðast áreynslu utan dyra. Viðkvæmir hópar ráðfæri sig við heilsugæsluna varðandi frekari ráðgjöf.
Áhrif loftmengunar á heilsu eru háð þeim tíma sem fólk dvelur í menguninni. Ef dvalið er lengur en 10─15 mínútur í mengun má búast við meiri áhrifum á heilsu en taflan segir til um.

Langtímaáhrif SO2 mengunar

Rannsóknir benda til að langtímadvöl í SO2 menguðu andrúmslofti geti valdið þrálátum öndunarfæraeinkennum, svo sem hósta, nefrennsli og astma. Þá sýna margar rannsóknir að mengunin getur valdið vaxtarskerðingu hjá fóstrum og að börn fæðist fyrir tímann. Engin merki eru um að SO2 mengun geti valdið krabbameini og óljóst er hvort mengun geti valdið hækkuðum blóðþrýstingi og ófrjósemi.

Ráðstafanir til varnar SO2 mengun innandyra

 

  1. Sléttfull teskeið (5gr.) af matarsóda er leyst upp í 1 lítra vatns.
  2. Bleytið klút t.d. viskastykki eða þunnt handklæði í þessari lausn.
  3. Vindið mesta vatnið úr þannig að ekki leki.
  4. Strengið klútinn með þvottaklemmum á þvottagrind eða sambærilegu í því herbergi sem ætlunin er að hreinsa loftið í.
  5. Látið borðviftu blása á klútinn.
  6. Til að klúturinn haldi virkni sinni þarf hann að vera rakur og gott er að halda rakastiginu við með því að úða á hann vatni t.d. úr blómaúðabrúsa.
  7. Við langvarandi mengun þarf að skola klútinn undir rennandi vatni tvisvar á dag og setja hann aftur í matarsódalausnina.

 

Nauðsynleg útivera í mikilli mengun > 2600 µg/m3

Ef fólk þarf nauðsynlega að fara á milli húsa þegar mengun er viðvarandi sem veldur óþægindum er gagnlegt að hafa blautan klút fyrir vitum en rakinn dregur í sig SO2 agnir. Klútur/rykgríma vætt í matarsódalausn, eins og lýst er hér að ofan, er enn betri vörn en klútur sem eingöngu er bleyttur í vatni. Athugið að meira viðnám er í blautum klút/blautri grímu sem gerir innöndun erfiðari. Rykgrímur duga lengur en klútur. Þetta ráð á aðeins við útivist í stuttan tíma (10-15 mín.) og á ekki við um atvinnutengda starfsemi, en við þetta gildi er öll vinna utan dyra stöðvuð nema viðeigandi varnir séu notaðar og er þá fylgt ráðgjöf Vinnueftirlitsins (dæmi: störf vísindamanna í nágrenni virkra eldstöðva).

Vinnuverndarmörk

Fari styrkur SO2 yfir mengunarmörkin 1.300 µg/m3 að meðaltali yfir 8 klst. tímabil skal stytta vinnutímann í hlutfalli við styrk mengunarinnar eða starfsmenn noti viðeigandi gasgrímur og gasmæla. Fari styrkur SO2 yfir mengunarmörkin 2.600 µg/m3 að meðaltali á 15 mín. tímabili skal vinnu hætt eða starfsmenn noti viðeigandi gasgrímu og beri gasmæli. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.

Sóttvarnalæknir, Umhverfis- og orkustofnun, Vinnueftirlitið og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Gosefnaspá

Líkan Veðurstofunnar
https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/

Líkan Belgings
https://gos.belgingur.is/

  • Mjög góð
  • Góð
  • Sæmileg
  • Óholl fyrir viðkvæma
  • Óholl
 

Valmynd

  • Viðbrögð við loftmengun frá eldgosum
  • Gosefnaspá
  • Gosmóða
  • API